Milk paint liturinn Outback Petticoat!

Skrifað af: Stína Sæm. þann

Annar af litunum sem við ætlum að skoða núna í Október og er á tilboði út mánuðinn er liturinn sem við kynntum nýjann  til sögunar á síðasta ári – Outback Petticoat.

 

 

Hann er appelsinugulur, ef það var ekki augljóst.


 


 

Ég skal segja ykkur að appelsínugulur reyndi á Marían, eiganda miss mustard seed!

Í fyrsta lagi, þurfti hún að sannfæra sjálfa sig um að þróa appelsínugulan.

Þar sem hún notar ekki mikið appelsínugult, gat hún ekki auðveldlega séð það fyrir sér á húsgagni. En með því að leita að innblæstri, fann hún mikið af fallegum herbergjum, hlutum og litapalletum í appelsínugulu. 

svo hún sló til.

 

 

Þegar hún var orðin sátt við appelsínugult, var annar vandi að finna rétta tóninn. Appelsínugult getur auðveldlega farið úrskeiðis. Meðan liturinn var i þróun, urðu til margir fremur ljótir appelsínugulir. Engin þeirra var nógu góður fyrir húsgögn. 

En loks lenti hún á appelsínugulum sem var djarfur.... en fallegur.

 

 

 

Með náttúrulegu litarefnunum okkar, varð hann að vera sterkur annars varð liturinn of "skítugur".  Það er líka kostur að byrja á sterkum lit svo hægt sé að milda hann með antík vaxi eða blanda hann með öðrum lit til að fá nýjann tón.

 

Nafnið Outback Petticoat kom frá hóp af Mmsmp söluaðilum í Ástralíu. 

Outback eru svæði í Ástralíu þar sem jarðvegurinn er appelsínugulur og litaði undirpils (petticoats) landnámskvenna Ástralíu.  

Nafnið höfðaði strax til Marían og hún heillaðist að ímyndinni um konu sem reynir að halda í kvennleikan og stílinn. þrátt fyrir aðgangsharða náttúruna. 

Svo að til að kynna þennan lit til sögunar þurfti hún að finna húsgagn sem myndi bera appelsínugulann. 

 Því ekki hvaða húsgagn sem er getur borið appelsígult með stæl!

 

Eftir langa leit valdi hún þessa kommóðu á craigslist,

aðalega vegna þess að hún var svo ódýr!

 

 

Hún hefur oft fjallað um "ljóta stigið" , en þessi kommóða var bara virkilega ljót á meðan hún var í vinnslu! 

 

 

Kanski var það vegna þess að hún er ekki vön honum, en hún var í hálfgerðu sjokki yfir appelsínugula litnum, alveg  þar til vörnin var komin á.

 

 

En við getum séð hér hversu mikið breyttist við að verja hann með  Hamp Olíunni …

 

 

Með flagnaðri og örlítið sjúskaðri áferðinni dró viðurinn sem skín í gegn, niður ákafann í litnum.

 

 

og mér finst ótrúlega flott að sjá dökkann viðinn undir appelsínugula laginu.

 

 

 Hvítar og appelsínugular rósir voru vel valdar fyrir þessa myndatöku.

 

 

En gaman væri að vita hvað ykkur finst og  hvað þið mynduð sjá fyrir ykkur málað með þessum djarfa appelsínugula lit.

Ert þú þessi litaglaða týpa?

Tilboð mánaðarins færðu í tilboðshorninu okkar.

Nældu þér í poka af outback petticoat í netversluni og sýndu okkur svo hvað þú málar með því að deila þínu verki með okkur í Málum svo margt fallegt hópnum á facebook.

 

kveðja 

Stína Sæm

 

Þýtt og stílfært frá miss mustard seed´s milk paint. Sjáið upprunalega útgáfau af þessum pósti á ensku 


Ef þér líkar þessi póstur þá máttu endilega deila honum fyrir mig.



← Eldri Póstar Nýrri Póstar →


Skildu eftir skilaboð