Berberavasi með eyrum Stone Grey H35cm
"Virðulegur" er það orð sem lýsir þessum vasa best!
Fallegur og massífur, hæð 35cm.
Liturinn heitir steingrár en það örlar aðeins á grænum tóni.
Engir tveir varsar eru alveg eins.
Framleitt í Portúgal fyrir danska vörumerkið Bungalow.
Við mælum með því að þurrka af vasanum með rökum eða þurrum klút.
Til athugunar: ef þú ætlar að hafa vatn í vasanum, láttu hann þá standa á fleti sem þolir raka, þar sem botn vasans er ekki með glerungi.