Vita blómapottur Stone Grey H17,5cm
Fallegur og massífur blómapottur, hæð 17,5cm.
Liturinn heitir steingrár en það örlar aðeins á grænum tóni.
Engir tveir pottar eru alveg eins.
Framleitt í Portúgal fyrir danska vörumerkið Bungalow.
Við mælum með því að þurrka af pottinum með rökum eða þurrum klút.
Til athugunar: ef þú ætlar að hafa vatn í pottinum, láttu hann þá standa á fleti sem þolir raka, þar sem botn vasans er ekki með glerungi.