Macrame jólaskraut. Kanilhengi
Handgerð mini jólahengi.
Hnýtt úr endurunnum bómullarköðlum með gylltum þráðum, á ilmandi kanilstöng, sem gerir þau einstaklega jólaleg og falleg.
Hengdu þau á jólatréð, á skáphurð eða notaðu þau til að skreyta jólapakkana.
Jólahengin eru hnýtt af alúð og engin tvö eru eins.
stærð: ca 11sm kanilstöngin er 8-9 sm
Veldu úr tveimur fallegum mynstrum: minimal og klassík. og Litum Karamellu/gyllt eða Avókadó grænt