Skilmálar

Almennt

 Svo margt fallegt áskilur sér rétt til að hætta við viðskiptin hafi rangt verð eða röng mynd fylgt vörunni á vefsíðunni og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.

Afhending vöru
Allar vörur eru afgreiddar næstu 2 virka daga eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager munum við hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Ef valið er að sækja vöru i Keflavík, er hægt að koma á tíma eftir samkomulagi. Einnig er hægt að velja að fá vöru senda frítt í Regnbogann verslun og sækja þangað á opnunartíma. Ef  valið er að fá pöntun senda heim eða á valinn afhendingarstað með dropp eða Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts og Dropp um afhendingu hennar. Svo margt fallegt ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Svo margt fallegt til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda

Sendingarkostnaður

sendingarkostnaður er samkvæmt gjaldskrá Póstsins og Dropp.

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með.  Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd nema um ranga eða gallaða vöru sé að ræða.  Kaupandi greiðir sendingarkostnað ef skila eða skipta á pöntun hjá Svo margt fallegt og  Útsöluvörum/tilboðsvörum fæst skipt en ekki skilað. Vinsamlega hafið samband á stina@svomargtfallegt.is ef frekari spurningar vakna.

Verð

Öll verð eru í íslenskum krónum, með vsk og eru birt með fyrirvara um prentvillur og myndarugl. Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.

Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur.