Undirbúningur

UNDIRBÚNINGUR!⁠
Fusion málningin hefur ótrúlega góða viðloðun og þarf lítinn undirbúning... ⁠en engin málning þarf engan undirbúning og ef þú gefur þér smá tíma í rétta undirbúninginn gefurðu verkefninu betra útlit og enn meiri endingu.⁠

  1. Fyrst er alltaf að þrífa húsgagnið vel og fylgja svo leiðbiningum fyrir hverja gerð af yfirborði fyrir málningu.⁠


Fusion™ TSP subtitude, sem er vatnsleysanlegt og umhverfisvænt hreinsiefni sem notað er til að hreinsa bert eða málað yfirborð áður en málað er. Mjög áhrifaríkt til að fjarlægja olíu, fitu, fingraför, bletti og önnur óhreinindi, sem mun auka viðloðun og útlit á nýrri umferð af málningu.

    2. undirbúningur fer eftir yfirborði:

 

👉Ef húsgagnið er bara hreinn viður eða mött málning er svo bara að mála það fallegt. ⁠

👉Ef húsgagnið er með glansandi áferð, málað eða lakkað er gott að pússa næst létt yfir með sandsvapminum til að matta yfirborðið áður en málað er.⁠
... eða⁠
👉Ertu að fara að mála virkilega erfitt yfirborð?⁠

Ultra Grip hjálpar Fusion™ við að binda sig við yfirborð sem yfirleitt er ekki málað, eins og háglansandi plasthúðað yfirborð, keramikflísar ofl ⁠

Með Ultra grip getur þú málað hið ómögulega.⁠

Berið þunna umferð af Ultra Grip á með rúllu eða fínni tusku áður en málað er með Fusion mineral paint.⁠

nr 3
Velja góðan pensil, hrista dósina og mála það fallegt!⁠
⁠🎨
ath Extender er frábær kostur fyrir þá sem vilja lengri vinnutíma með málninguna, til að hjálpa til við að minnka penslaför og lengja þurktíman. ⁠
Ráðlagt hlutfall er aðeins 15 mL á móti einni dós (500 mL) af málningu.⁠